Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1434361164.73

    Vigrar, stikaform og keilusnið
    STÆR3VK05
    100
    stærðfræði
    keilusnið, vigrar
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Meginefni áfangans eru skilgreiningar og reiknireglur á vigrum í sléttu og á hnitaformi, vigrar í þrívídd og hnit þeirra. Einnig er fjallað um sögulega þætti flatarmyndafræði og sannanir á nokkrum völdum reglum, stikaform sléttu, línu og ferla. Fjallað er um keilusnið, jöfnur þeirra og speglunareiginleika. Nemendur þurfa að kunna skil á almennri flatarmyndafræði og þekkja helstu reglur og frumhugtök í tví- og þrívíðri rúmfræði, þrívíðu hnitakerfi og túlkun jafna í þrívídd eða fleiri víddum.
    STÆR2HV05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • skilgreiningum og reiknireglum vigra í sléttu og rúmi
    • stikaformi línu í tvívíðu og þrívíðu rúmi
    • stikaformi sléttu, jöfnu sléttu og línu ákvarðaða af tveimur sléttum
    • horni milli lína, horni milli sléttna og horni milli línu og sléttu
    • krossfeldi
    • fjarlægð milli punkta og línu, fjarlægð milli punkts og sléttu, fjarlægð milli samsíða slétta og fjarlægð milli mislægra lína
    • keilusniðum og eiginleikum þeirra
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • beita vigurreikningi í sléttum fleti
    • finna stikaform lína og slétta
    • finna innfeldi og krossfeldi vigra
    • sanna helstu reglur í þrívíðri rúmfræði
    • vinna með keilusnið
    • nota grafíska vasareikna og stærðfræðiforrit
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • skiptast á skoðunum við aðra
    • útskýra hugmyndir sínar og verk skilmerkilega og á viðeigandi hátt
    • kynna ólíkar aðferðir við framsetningu stærðfræðilegra hugmynda og viðfangsefna
    • skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og vinna með þau
    • geta fylgt og skilið röksemdir og röksamhengi í mæltu máli og texta, þar með taldar sannanir í námsefni
    • beita skipulegum aðferðum við að leysa úr viðfangsefnum og þrautum
    Í áfanganum er próf og verkefnavinna.