Efni áfangans eru tvinntölur og deildajöfnur af fyrsta og öðru stigi. Jafnframt er farið í lengd ferils og yfirborðsflatarmál. Lögð er áhersla á raunhæf verkefni og skoðaðar andhverfur hornafalla.
Við lausn verkefna eru notaðir vasareiknar og tölvuforrit.
STÆR3HR05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
greina tvinntölur
bera kennsl á tvinntalnasléttu
bera kennsl á veldi tvinntalna
vinna með mismunandi margliðujöfnur
bera kennsl á mismunandi deildajöfnur
finna lengd ferils og yfirborðsflatarmál snúðs
finna andhverfu hornafalla
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
reikna með tvinntölum í tvinntalnasléttu
reikna veldi tvinntalna
kanna helstu gerðir margliða
nota deildun í raunhæfum verkefnum
nota heildun til að leysa raunveruleg viðfangsefni
kanna helstu gerðir deildajafna
kanna lengd ferils
sanna reglur
kanna andhverfur hornafalla
nota grafíska vasareikna og stærðfræðiforrit
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skiptast á skoðunum við aðra um lausnir
útskýra hugmyndir sínar og verk skilmerkilega
kynna ólíkar aðferðir við framsetningu stærðfræðilegra hugmynda og viðfangsefna
skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og vinna með þau
geta fylgt og skilið röksemdir og röksamhengi í mæltu máli og texta, þar með taldar sannanir í námsefni
beita skipulegum aðferðum við að leysa úr viðfangsefnum og þrautum, s. s. út frá þekkingu á lausnum svipaðra þrauta, unnið til baka frá þekktum stærðum eða með því að vinna með margliður, vísis -og lograföll við lausn raunverulegra viðfangsefna