Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1434365941.37

    Afreksíþróttaþjálfun
    AÍÞR1AÍ03
    1
    Afreksíþróttir
    Afreksíþróttir
    Samþykkt af skóla
    1
    3
    Nemendur stunda markvisst og skipulega afreksþjálfun í íþrótt sinni 3-4x í viku með sérhæfðum þjálfara eða fagaðila. Í þessum áfanga er sérstök áhersla lögð á fjölbreyttar og krefjandi æfingar sem nemendur fá að kynnast og læra.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • mikilvægi þess að þjálfun sé markviss og skipulögð til að ná árangri
    • líkamlegu formi og hvernig það er þjálfað markvisst og skipulega
    • hvað markmið séu og hvernig þau eru byggð upp til skemmri tíma
    • uppsetningu og innihaldi æfingadagbóka
    • hvernig þjálfunaráætlun er uppbyggð
    • ýmsum mikilvægum æfingum, s.s. endurheimtaræfingum, fyrirbyggjandi æfingum og sérhæfðum líkamlegum æfingum.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • setja upp heilsteypta markmiðaáætlun til skemmri tíma
    • meta líkamlegt form sitt
    • læra að þekkja kosti og galla sína sem íþróttamaður í þeirri íþróttagrein sem hann iðkar
    • framkvæma fjölbreytt og öðruvísi hreyfiform við endurheimt og viðhald líkamlegrar getu
    • setja upp þjálfunaráætlun til skemmri tíma þar sem unnið er með þau markmið sem nemandi hefur sett sér.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • nýta þjálfun sína sem best til að ná sem bestum árangri í íþrótt sinni
    • útbúa sér markmiða- og þjálfunaráætlun til skemmri tíma sem tekur til mikilvægustu þátta þjálfunar út frá líkamlegu formi og getu viðkomandi
    • framkvæma æfingaáætlun undir eftirliti kennara, þjálfara eða fagaðila sem nemandinn hefur gert með aðstoð kennara, þjálfara eða fagaðila.
    Í áfanganum er viðhaft leiðsagnarmat með símati alla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar. Nemendur þurfa að uppfylla skilyrði um mætingu og virkni í tímum. Áfanginn er metinn út frá verkefnasilum, mætingu, virkni, færni og áhuga