Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1434367614.42

    Samtímasaga
    SAGA3ST05
    51
    saga
    samtímasaga
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Saga samtímans frá heimsstyrjöldinni síðari til líðandi stundar. Aðaláhersla áfangans er á kalda stríðið og áhrif þess á heiminn. Einnig er mikil áhersla lögð á atburði líðandi stundar og sögulegar orsakir þeirra.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • helstu atburðum samtímans.
    • orsökum, framvindu og afleiðingum sögulegra fyrirbæra og samtímaviðburða í ólíkum heimshlutum og tengslum milli þeirra innbyrðis.
    • áreiðanleika heimilda og gagnrýninni notkun þeirra.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • beita ólíkum aðferðum við að afla sér þeirra upplýsinga sem völ er á um viðfangsefnið.
    • leggja mat á ólíkar heimildir, t.d. frumtexta, eftirheimildir og myndefni margs konar.
    • miðla þekkingu sinni á efninu með fjölbreyttum aðferðum eftir því sem við á hverju sinni.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • afla sér heimilda um samtímasögu og meta áreiðanleika þeirra.
    • draga rökstuddar ályktanir af þeim upplýsingum sem heimildirnar veita.
    • taka gagnrýna afstöðu til samtímaviðburða og leggja mat á orsakir þeirra og afleiðingar.
    • átta sig á þróun mála á helstu átakasvæðum heimsins í dag út frá sögulegum bakgrunni þeirra.
    • bera saman helstu stjórnmála- og hugmyndafræðistefnur 20. aldar.
    • miðla þekkingu sinni á skipulegan og fjölbreytilegan hátt með vísan til heimilda.
    Áfanginn er símatsáfangi með fjölbreyttu námsmati. Skrifleg verkefni, kaflapróf, kynningar og umræður í tíma.