Í áfanganum læra nemendur undirstöðuatriði í handknattleik. Lögð er áhersla á kennslu knatttækni og leikfræði fyrir byrjendur. Stefnt er að því að nemendur öðlist ákveðna grundvallarfærni í greininni. Farið er yfir helstu atriði í þjálffræði barna og mikilvægi þess að leikurinn sé greindur sundur í stuttar einingar, leikæfingar. Áfanginn er bóklegur og verklegur.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
að leiðbeina börnum á mismundandi aldri í handknattleik
skipulagi á þjálfun fyrir börn og unglinga
leikreglum
helstu þjálfunaraðferðum
mikilvægi á fjölbreyttum tækni- og leikæfingum í handbolta
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
búa til tímaseðla fyrir mismunandi aldur
beita mismunandi þjálfunaraðferðum með ákveðin markmið að leiðarljósi svo sem þol, kraft og tækni
stunda handbolta og miðla því frá sér
þjálfun í handbolta í samvinnu við kennara
sýna og framkvæma ýmsar æfingar sem tengjast íþróttinni
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
geta þjálfað ýmsa aldurshópa í handbolta í samvinnu við kennara