Í áfanganum er fjallað um grundavallarhugtök og lykilatriði erfðafræðinnar, auk þess sem komið er inn á sögu erfðafræðinnar og stöðu hennar innan náttúruvísinda. Umfjöllunaratriði áfangans eru m.a. kjarnsýrur, litningar, gen, frumuskiptingar, afritun, umritun, próteinmyndun, kynfrumumyndun, æviskeið frumu, arfmynstur, ættartöflur og kynákvörðun. Uppbygging og starfsemi litninga er skoðuð og hlutverk þeirra. Breytingum erfðaefnis, genastökkbreytingum og litningabreytingum er lýst. Grunnatriðum stofnerfðafræðinnar eru gerð skil þar sem fjallað er um tíðni og jafnvægi gena í ólíkum stofnum lífvera og hugsanlegar orsakir tíðnibreytinga. Helstu aðferðir sem beitt er innan erfðarannsókna eru kynntar ásamt nýjustu rannsóknaaðferðum í erfða- og líftækni. Fjallað er um arfgenga sjúkdóma, erfðabreyttar lífverur og nýjustu hugmyndir í genalækningum.
LÍFF2MA05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
almennum og sértækum efnisatriðum og hugtökum áfangans
arfgengi einkenna
uppbyggingu og hlutverki erfðarefnis lífveru
samhengi milli litninga, próteina og almennrar líkamsstarfsemi lífveru
samhengi milli umhverfis og tíðni gena
ólíkum stökkbreytingum og geri sér grein fyrir áhrifum þeirra á lífverur
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
miðla af þekkingu sinni á erfðum lífvera skriflega, með teikningum, skýringarmyndum og með þátttöku í umræðum
miðla og ræða ólíka þætti erfðafræðinnar, svo sem frumuerfðafræði, sameindaerfðafræði og stofnerfðafræði
lesa úr og túlka ættartöflur
framkvæma einfaldar rannsóknir í erfðafræði
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
geta kynnt sér umfjöllun um erfðafræðileg málefni og tekið þátt í umræðum þar að lútandi
færa rök fyrir samspili erfða og þróunar
skilja arfgengi sjúkdóma
rökræða siðfræðileg álitamál innan erfðafræðinnar og erfðatækninnar
taka rökstudda og siðferðilega afstöðu til erfðatækninnar og geta rætt umdeild mál er hana varðar
Verkefnavinna, þátttaka í umræðum, ritgerð, kynningar og próf