Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1434633103.34

    Lífeðlisfræði
    LÍFF3LE05
    41
    líffræði
    lífeðlisfræði
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Í áfanganum eru teknir fyrir þættir er varða uppbyggingu og starfsemi mannslíkamans. Fjallað er um blóðrásarkerfið, vessa- og ónæmiskerfið, innkirtlakerfið, meltingarkerfið, öndunarkerfið og þveitiskerfið. Einnig er fjallað um hvernig starfsemi líffærakerfanna tengist innbyrðis og viðheldur innri stöðugleika líkamans. Heilbrigð starfsemi líkamans er rædd, en einnig algengustu frávik. Lögð er áhersla á að nemendur kynnist líffærum dýra af eigin raun með krufningum, skoðun líffæra/líkana og vefjasýna. Helstu efnisatriði áfangans eru: blóð, blóðflokkar, hringrásarkerfi, æðar, hjarta, hjartsláttur, blóðþrýstingur, eitlar, vessi, húð, varnarkerfi, ónæmi, innkirtlar, hormón, hormónastjórnun, meltingarfæri, melting, meltingarensím, lifur, gallblaðra, lungu, loftskipti öndunar, nýru.
    LÍFF2MA05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • almennrum og sértækum efnisatriðum og hugtökum áfangans
    • heildaruppbyggingu mannslíkamans
    • uppbyggingu og starfsemi þeirra líffærakerfa sem um ræðir
    • samstarfi líffærakerfa til viðhalds innra jafnvægis líkamans
    • heilbrigðri starfsemi mannslíkamans
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • miðla þekkingu sinni á líffærakerfum mannsins skriflega, með teikningum, skýringarmyndum og með þátttöku í umræðum og kynningum
    • kryfja spendýr meðvitaður um staðsetningu allra líffæra
    • meðhöndla krufningaráhöld og mælitæki
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • tengja umfjöllun um sjúkdóma við ákveðin líffærakerfi og líkamsstarfsemina
    • sjá orsakasamhengi sjúkdómsvalda og sjúkdómseinkenna
    • sjá orsakasamhengi óheilbrigðs lífsstíls á líkamann
    Verkefnavinna, kynningar, skýrslugerðir og próf.