Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1434636357.83

    Jarðsaga - áfangi ætlaður náttúrufræðibraut
    JARÐ3JS05
    9
    jarðfræði
    jarðsaga
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Í áfanganum kynnast nemendur sögu jarðar, þróun lífríkis og breytingum á landaskipan í tímans rás. Sérstök áhersla er lögð á myndunar- og mótunarsögu Íslands. Sjálfstæð vinnubrögð nemenda endurspeglast í verkefnavinnu þeirra. Helstu efnisatriði eru: • Kortagerð • Gerð jarðlaga • Jarðsaga heimsins • Náttúruhamfarir og áhrif þeirra á sögu jarðar • Jarðsögutaflan • Upphaf mannsins • Aldursákvarðanir • Jarðsaga Íslands og eldgosasaga • Ísaldir og orsakir þeirra
    JARÐ3JÍ05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • upplýsingum um jarðlög af jarðlagakortum
    • notkun jarðsögutöflunnar
    • áhrifum náttúrhamfara á sögu jarðar
    • lestri gagna um aldursákvarðanir
    • hugmyndum um orsakir ísalda
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • rekja í meginatriðum þróun lífs á jörðu
    • rekja upphafssögu mannsins
    • teikna þversnið eftir jarðlagakortum
    • reikna flatarmál eftir jarðfræðikortum
    • nota segulkvarðann
    • reikna einföld dæmi um aldursákvarðanir
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • tengja saman hagnýt jarðefni og þá jarðsögu sem leiðir til myndunnar hagnýtra efna
    • túlka jarðlagakort og skýra þá jarðlagauppbyggingu sem fram kemur á þeim
    • beita viðurkenndum aðferðum til jarðlagatenginga
    • rökstyðja tengsl náttúrhamfara og þróunar lífs á jörðu
    • bera saman jarðsögu mismunandi landshluta Íslands
    • vinna sjálfstætt að afmörkuðum verkefnum nemendahópnum til handa
    • vinna í hópi að afmörkuðum verkefnum nemendahópnum til handa
    • tengja jarðlög milli jarðlagasniða
    • fjalla á gagnrýnin hátt um hugmyndir um orsakir ísalda
    Símat