Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1434702770.33

    Grunnáfangi A
    FRAN1AA05
    34
    franska
    Franska
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Þar sem þetta er byrjunaráfangi, er megináhersla lögð á að nemendur tileinki sér undirstöðuatriði tungumálsins í gegnum tal, hlustun, lesskilning og ritun. Áhersla er lögð á réttan framburð, uppbyggingu orðaforða og að þjálfa grunnatriði málfræðinnar. Fléttað er inn í kennsluna menningu frönskumælandi landa. Til að þjálfa ofantalin atriði geta meðal annars eftirfarandi efnisþættir legið til grundvallar í kennslu: Kynning á sjálfum sér og öðrum, að kveðja og heilsa, helstu samskiptavenjur, líkaminn, daglegar athafnir, skoðanir (að líka/mislíka) aldur, búseta, starf , þjóðerni, lönd og tungumál, tölur, dagar, mánuðir og árstíðir. Áhersla er lögð á að nemendur tjái sig sem mest á frönsku í töluðu og rituðu máli. Einnig er lögð áhersla á að nemendur beri ábyrgð á sínu eigin námi og sýni sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og skapandi hugsun.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að mæta hæfniviðmiðum þrepsins
    • mannlífi, menningu og siðum í löndum þar sem tungumálið er talað sem móðurmál/fyrsta mál og þekkja samskiptavenjur
    • grundvallarþáttum málkerfisins
    • formgerð og byggingu texta og mismuninum á töluðu og rituðu máli
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • skilja talað mál um kunnugleg efni þegar talað er skýrt og áheyrilega
    • lesa ýmiss konar texta á eigin áhugasviði eða texta um kunnugleg efni og beita viðeigandi aðferðum eftir því hver tilgangur með lestrinum er hverju sinni
    • taka þátt í einföldum samræðum um efni sem hann þekkir eða hefur áhuga á og beita kurteisisvenjum, málvenjum og hljómfalli við hæfi
    • beita orðaforða á skýran hátt með því að beita málvenjum, framburði, áherslum og hljómfalli
    • skrifa samfelldan texta um efni sem hann þekkir eða hefur áhuga á og nota viðeigandi málfar
    • fara eftir grundvallarreglum sem gilda um ritað mál
    • nota upplýsingatækni og hjálpargögn í tungumálanámi
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • greina einfaldar upplýsingar þegar talað er hægt og skýrt
    • velja rétt samskiptaform miðað við aðstæður hverju sinni
    • vinna úr textum á mismunandi hátt eftir því hver tilgangurinn er með lestri hverju sinni
    • átta sig á innihaldi stuttra blaðagreina og texta
    • skipuleggja nám sitt og námsaðferðir
    • meta vinnulag og framfarir í áfanganum
    • vera meðvitaður um hvaða leiðir nýtast best til að tileinka sér franska tungu