Í áfanganum þjálfar nemandinn bæði sjálfstætt og undir eftirliti einn hest sem að hann fylgir eftir alla önnina. Setur sér markmið og gerir þjálfunáætlun fyrir hestinn. Markviss þjálfun byggð á þjálfunarstigum.
HEST2KF03, REIM2KF05, FÓHE2HU03, VINH3SH10
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
helstu þáttum þjálfunarlífeðlisfræði og þjálfunar hesta.
hvað liggur til grundvallar æfingunum opnum sniðgangi og að láta hestinn ganga aftur á bak.
gangtegundum íslenska hestsins og hvað liggur til grundvallar þjálfunar þeirra.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
leggja rétt mat á einfaldar aðstæður og taka sjálfstæðar ákvarðanir varðandi verklag.
nálgast fag sitt af ábyrgð og virðingu.
hefur gott vald á eigin líkama, ásetu og stjórnun á hestbaki.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
geta þjálfað og bætt sinn eigin hest.
hafa mjög gott vald á öllum ásetum og kunna að beita þeim rétt við þjálfun hestsins.
geta notað sér reiðvöllinn og fjölbreyttar reiðleiðir markvisst við þjálfun hestsins.
hafa vald á gangtegundaþjálfun og geta riðið allar gangtegundir nema skeið.
hafa gott vald á hraðastjórnun og gangskiptingum.
geta látið hestinn stækka og minnka rammann, á feti og brokki.
hafa vald á æfingunum opnum sniðgangi (á feti) og að láta hestinn ganga aftur á bak.
geta framkvæmt réttar gangskiptingar í jafnvægi.
knapi og hestur í andlegu og líkamlegu jafnvægi.
hafa stjórn á formi hestsins.
að nota mismunandi fimiæfingar þegar við á til að bæta hestinn.
Námsmat er fjölbreytt og felst meðal annars í ýmsum verkefnum, prófum, jafningjamati og sjálfsmati.