Fjallað er um umhyggjuhugtakið og sjálfsumönnun ásamt helstu hjúkrunarkenningum og tengslum þeirra við starfsvettvang. Fjallað er um hjúkrunarferli og faglega hjúkrunarskráningu. Fjallað er um hjúkrun sjúklinga með bráða- og langvinna sjúkdóma sem tengjast eftirtöldum kerfum: hjarta- og æðakerfi, öndunarfærakerfi, meltingarkerfi, þvag- og kynkerfum. Fjallað er um hjúkrun sjúklinga með illkynja sjúkdóma. Í áfanganum er lögð áhersla á tengingu fræðilegrar þekkingar við skipulagningu og framkvæmd hjúkrunar.
HJÚK1AG05, HJVG1VG06
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
helstu hjúkrunarkenningum og tengslum þeirra við starfsvettvang
umhyggjuhugtakinu og sjálfsumönnun
mikilvægi hjúkrunarskráningar
áhrifum bráðs og langvinns heilsubrests á sjálfsmynd og líðan skjólstæðinga
hjúkrun sjúklinga með sjúkdóma í hjarta- og æðakerfi, öndunarfærakerfi, meltingarkerfi, þvag- og kynkerfum
helstu einkennum illkynja sjúkdóma í þeim líffærakerfum sem fjallað er um í lýsingu
undirbúningi og eftirmeðferð vegna rannsókna og skurðaðgerða
þverfaglegri teymisvinnu í meðferð skjólstæðinga
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
sýna skjólstæðingi og aðstandendum stuðning og umhyggju
greina á milli mismunandi hjúkrunarþarfa langveikra, bráðveikra og mikið veikra
beita viðeigandi hjúkrunarmeðferð fyrir og eftir aðgerðir og rannsóknir
beita ólíkum vinnubrögðum við smitgát eftir eðli sjúkdómsástands
veita sjúklingum og aðstandendum faglega umhyggju og stuðning
vinna eftir viðurkenndri hjúkrunarskráningu
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
meta hjúkrunarþarfir langveikra, bráðveikra og mikið veikra
meta og útskýra áhrif bráðs og langvinns heilsubrests á sjálfsmynd og líðan skjólstæðinga
bregðast við algengum aukaverkunum meðferðar vegna illkynja sjúkdóma
leiðbeina skjólstæðingum með athafnir daglegs lífs
velja milli ólíkra vinnubragða við smitgát eftir eðli sjúkdómsástands
útskýra algengar aukaverkanir meðferðar vegna illkynja sjúkdóma
taka þátt í þverfaglegri vinnu í meðferð skjólstæðinga
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.