Vinnustaðanámið/verknámið fer fram á sérdeildum s.s. gjörgæsludeildum, kvennadeild, endurhæfingardeildum, líknardeildum, geðdeildum eða heilsugælustöðvum og í heimahjúkrun. Kennari áfangans, sjúkraliði/leiðbeinandi og deildarstjóri bera sameiginlega ábyrgð á verklegu námi sjúkraliðanema. Nemandinn skal skipuleggja hjúkrunarstörf sín í samvinnu við leiðbeinanda og geta yfirfært bóklega þekkingu á hjúkrunarviðfangsefni sem hann vinnur við á deildinni. Nemandinn skal fá þjálfun í því að vinna sjálfstætt, sýna frumkvæði og forgangsraða verkefnum sínum með þarfir skjólstæðinga að leiðarljósi. Nemandinn fylgir leiðbeinanda við öll almenn störf sjúkraliða. Í upphafi tímabils setur nemandinn sér persónuleg og fagleg markmið um verknámið. Á meðan á verknámi stendur skal nemandinn fylla út gátlista og ferilbók um unna verkþætti.
VINN3ÖH08
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
mikilvægi heildrænnar hjúkrunar
helstu þáttum sem hafa áhrif á heilsu og lífsgæði skjólstæðinga
helstu hjálpartækjum sem notuð eru í hjúkrunarstörfum
faglegri umhyggju og samskiptum í hjúkrunarstörfum
mikilvægi eftirlits og mats á líkamlegu og andlegu ástandi skjólstæðinga
mælitækjum og öðrum hjúkrunargögnum sem notuð eru
sjálfsákvörðunarrétti og réttindum sjúklinga samkvæmt lögum
mikilvægi forgangsröðunar í hjúkrunarstörfum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
sýna skjólstæðingum og aðstandendum virðingu og faglega umhyggju
nota helstu hjálpartæki og hjúkrunargögn á viðeigandi hátt
taka þátt í þverfaglegri samvinnu heilbrigðisstétta
sýna frumkvæði og forgangsraða eigin störfum
skrá og vinna samkvæmt hjúkrunarferli
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
velja viðeigandi hjúkrunarmeðferð hverju sinni og geta rökstutt hana
virða og rökstyðja mikilvægi þagnarskyldu og mikilvægi trúnaðar
sýna hæfni í samskiptum og samstarfi við skjólstæðinga, aðstandendur þeirra og samstarfsfólk
leggja sitt að mörkum í þverfaglegri samvinnu
hjúkra sjúklingum við margbreytilegar aðstæður
útskýra mikilvægi þagnarskyldu og réttindi sjúklinga
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.