Farið er yfir uppbyggingu almenns sjúkrahúsfæðis og helstu gerðir af sérfæði. Nemendur læra grunnaðferðir í matreiðslu sérfæðis, semja matseðla (dags-/vikumatseðla) fyrir allar helstu gerðir af sérfæði á heilbrigðisstofnunum og reikna út næringargildi þeirra með hjálp tölvuforrits. Nemendur breyta matseðlum almenns fæðis í matseðla fyrir sérfæði, semja innkaupalista og gera vinnuáætlanir. Fæðutengdar ráðleggingar Embættis landlæknis um mataræði og næringarefni eru hafðar að leiðarljósi við skipulagningu matseðla. Nemendur þjálfast í að áætla magn, skammtastærðir o.fl.
NÆRG2FV05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
samsetningu dags- og vikumatseðla fyrir sérfæði
að aðlaga uppskriftir að viðkomandi sérfæði
útreikningi á næringargildi sérfæðis með hjálp tölvuforrits
gerð innkaupalista og áætlun skammtastærða fyrir sérfæði
gerð tíma- og vinnuáætlana
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
vinna með réttar forsendur sérfæðis
setja saman dags- og vikumatseðla fyrir sérfæði
aðlaga uppskriftir að viðkomandi sérfæði
reikna út næringargildi sérfæðis
gera innkaupalista og áætla skammtastærðir
gera tíma og vinnuáætlanir
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
semja matseðla fyrir sérfæði út frá gefnum forsendum
tjá sig á skapandi og ábyrgan hátt um fagleg málefni og rökstyðja niðurstöður sínar
Fjölbreytt námsmat, sjá nánari útfærslu í kennsluáætlun.