Í áfanganum fá nemendur þjálfun í matreiðslu og bakstri fyrir almennt sjúkrahúsfæði og allar helstu gerðir af sérfæði sem þörf er á fyrir heilbrigðisstofnanir og fjallað er um í áfanganum SFBÓ3SB03. Nemendur læra að matreiða og framreiða allar máltíðir dagsins, bæði heitar og kaldar. Þeir vinna sjálfstætt eftir eigin matseðlum, innkaupalistum og vinnuáætlunum.
MATR2MA10
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
aðferðum og vinnulýsingum sem lúta að almennum og sérhæfðum verkferlum í matreiðslu og bakstri sérfæðis, bæði heitum og köldum réttum, öllum máltíðum
viðmiðum um skammtastærðir og næringargildi
að breyta uppskriftum fyrir almennt fæði í sérfæði
mikilvægum ferlum við útsendan mat og gæðastaðla um innra eftirlit: HACCP
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
matreiða og baka allar gerðir sérfæðis
reikna úr næringargildi og áætla skammtastærðir
breyta uppskriftum fyrir almennt fæði í sérfæði
vinna eftir ferlum við útsendan mat og gæðastöðlum um innra eftirlit HACCP
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
bera ábyrgð á verkferlum og skipulagi við gerð sérfæðis á heilbrigðisstofnun
vinna eftir ferlum við útsendan mat og gæðastöðlum um innra eftirlit HACCP
Fjölbreytt námsmat, sjá nánari útfærslu í kennsluáætlun.