Í áfanganum fást nemendur við matseðlagerð, læra um flokka rétta, heiti rétta og grunnreglur við matseðlagerð. Einnig matseðlagerð fyrir mötuneyti með hliðsjón af fæðutengdum ráðleggingum Embættis landlæknis.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
að greina og flokka almenna matseðla og matseðla fyrir mötuneyti með áherslu á fæðutengdar ráðleggingar Embættis landlæknis
að greina og flokka fæðutegundir sem geta valdið ofnæmis- og óþolsviðbrögðum
notkun hugbúnaðar til útreikninga á næringargildi matseðla fyrir mismunandi tilefni
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
gera matseðla fyrir mötuneyti og veitingahús með fæðutengdar ráðleggingar Embættis landlæknis að leiðarljósi
skipuleggja matseðla fyrir ólíka hópa s.s. börn, unglinga, aldraða með hliðsjón að almennum matseðlum
gera matseðla þar sem taka þarf tillit til fæðuofnæmis og óþols
nota hugbúnað til útreikninga á næringarinnihaldi máltíða
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skipuleggja matseðla fyrir mötuneyti og veitingahús með fæðutengdar ráðleggingar Embættis landlæknis að leiðarljósi
skipuleggja og gera matseðla þar sem taka þarf tillit til fæðuofnæmis- og óþols og næringarþarfa mismunandi hópa