Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1435270544.11

    Vöruþekking sérfæðis
    VÖÞE3VÞ02
    1
    Vöruþekking sérfæðis
    Vöruþekking sérfæðis
    Samþykkt af skóla
    3
    2
    Í áfanganum er fjallað um vöruflokka úr dýra- og jurtaríkinu, framleiðslu þeirra ásamt neytendafræði. Nemendur eiga að kunna skil á reglugerð um merkingu matvæla og aukefni í matvælum. Skoðaðar eru vörur sem tengjast sérfæði.
    HEMF2HR03
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • reglugerðum um merkingu matvæla
    • vöruflokkum er tengjast sérfæði og hráefni sem valdið getur ofnæmi og óþoli
    • að gera samanburð á vörugæðum og vöruverði
    • ýmsum þáttum neytendaþjónustu og rétti neytenda
    • mikilvægi viðurkenndra vörulýsinga, vörumerkinga og vöruvottunar
    • algengustu umhverfismerkjum .
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • lesa innihaldslýsingar á vörum og geta valið örugg matvæli með tilliti til ofnæmis og óþols
    • að bera saman vöruverð og vörugæði
    • afla hagnýtra upplýsinga um reglugerðir um merkingu matvæla
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • velja hráefni við hæfi fyrir alla matreiðslu sérfæðis
    • tjá sig um fagleg málefni er snúa að rétti neytenda
    • tjá sig um mikilvægi viðurkenndra vörulýsinga, vörumerkinga og vöruvottunar
    • útskýra algengustu umhverfismerkin
    • vísa á reglugerðir sem í gildi eru um merkingu matvæla og aukefni í matvælum
    Fjölbreytt námsmat, sjá nánari útfærslu í kennsluáætlun.