Í áfanganum eru kennd undirstöðuatriði í notkun á tölvum og upplýsingatækni. Lögð er áhersla á að nemendur læri á þau verkfæri sem notuð eru í kennslu og læri að nýta sér internetið til gagnaöflunar. Nemendur frá þjálfun í algengustu verkfærum, s.s. ritvinnslu, töflureikni og tölvupósti, meðferð heimilda, geymslu gagna, myndbandsgerð og námsumsjónakerfi skóla. Einnig er farið í samskiptareglur á internetinu.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
notagildi upplýsingatækni
notagildi helstu tölvuforrita
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
beita mismunandi hugbúnaði við miðlun á verkefnum, ritgerðum og skýrslum
setja fram og kynna lausnir á afmörkuðum verkefnum s.s. að reikna út kostnað, framlegð
gera áætlun um innkaup og setja upp súlurit
setja upp stærri skjöl með forsíðu, efnisyfirliti, tilvitnunum og heimildaskrá
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skipuleggja úrvinnslu verkefna sem einstaklingur eða í hóp
nota upplýsingatækni, tölvukunnáttu og stærðfræði til miðla skoðunum sínum og koma niðurstöðum á framfæri.