Í áfanganum er fengist við matreiðslu á almennu fæði og vinnslu- og verkunaraðferðir kalda eldhússins. Jafnframt matreiðslu og bakstur fyrir helstu gerðir af sérfæði s.s. ofnæmis og óþolsfæði og matreiðslu grænmetisfæðis. Ennfremur matreiðslu fyrir hópa með mismunandi næringarþarfir s.s. börn, unglinga, aldraðra og íþróttafólk. Nemendur vinna að tilraunum í matreiðslu á ýmsum fæðutegundum og gera samanburð á þeim.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
aðferðum og vinnulýsingum sem lúta að matreiðslu almenns fæðis og sérfæðis
helstu vinnslu og verkunaraðferðum sem notaðar eru við framreiðslu á köldum mat og sérstöðu íslenskrar matargerðar og geymsluaðferða
matreiðslu fyrir ólíka hópa s.s. börn, unglinga, aldraða og íþróttafólk
matreiðslu og bakstri fyrir sérfæði í almennum mötuneytum, s.s. ofnæmi, óþol, sykursýki o.fl.
helstu gerðum grænmetisfæðis
viðmiðum um skammtastærðir og næringargildi
tilraunamatreiðslu og samanburði á næringargildi og matreiðsluaðferðum
mikilvægum ferlum við útsendan mat og gæðastaðla um innra eftirlit: HACCP
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
matreiða almennt fæði og ákveðnar gerðir sérfæðis, s.s. vegna ofnæmis og óþols, sykursýki o.fl.
matreiða klassískan, íslenskan kaldan mat
undirbúa og matreiða fyrir ólíka hópa s.s. börn, unglinga, aldraða og íþróttafólk
undirbúa og matreiða helstu gerðir grænmetisfæðis
reikna úr næringargildi og áætla skammtastærðir
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
útskýra vinnuferla sem byggja á aðferðafræði er lýtur að matreiðslu almenns fæðis, sérfæðis og kaldra rétta
skipuleggja verkferla og verkefnalista og vinna eftir þeim
meta störf sín og annarra í matreiðslu á hlutlægan hátt
breyta uppskriftum fyrir almennt fæði svo þær henti fyrir sérfæði
breyta uppskriftum fyrir almennt fæði svo þær henti fyrir sérfæði