Áfanginn byggist upp á alhliða hreyfingu og heilsurækt í líkamsræktarstöð þar sem nemendur stunda hreyfingu við hæfi. Áhersla er lögð á að nemendur spreyti sig á fjölbreyttum æfingum sem byggja upp þol, styrk og liðleika. Nemendur vinna sjálfstætt og útbúa eigin þjálfunaráætlun og bera ábyrgð á að fylgja henni eftir. Einnig lögð áhersla á að nemendur átti sig á mikilvægi hreyfingar á andlega, líkamlega og félagslega líðan þeirra.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Mikilvægi almennrar heilsuræktar
Markmiðssetningu og uppbyggingu þjálfunaráætlunar
Mikilvægi réttrar líkamsbeitingar
Mismunandi þjálfunaraðferðum til eflingar líkama og heilsu
mikilvægi hreyfingar á andlega, félagslega og líkamlega heilsu og vellíðan
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Stunda æfingar sem auka þol, styrk og liðleika
Stunda þjálfun og hreyfingu sem hefur áhrif á jákvæða upplifun og viðhorf til líkams- og heilsuræktar
Nýta sér undirstöðuatriði líkamsbeitingar í sinni þjálfun
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Velja líkamsrækt við hæfi
Leysa af hendi verkefni sem snúa að skipulagi eigin þjálfunar
Styrkja jákvæða sjálfsmynd og hugarfar með þátttöku í almennri líkams- og heilsurækt
Glíma við fjölbreytt verkefni sem snúa að alhliða hreyfingu, líkams- og heilsuræktar.
Áfanginn er verklegur. Nemendur þurfa að vinna sjálfstætt en geta fengið mikla leiðsögn óski þeir eftir því. Lögð er áhersla á að nemendur mæti jafnt og þétt yfir alla önnina og byggist námsmat á því. Áfanginn er próflaus.