Farið er í grunnþætti líkams- og heilsuræktar. Nemendur fá kennslu í að velja æfingar sem byggja upp þol, styrk og liðleika. Einnig fá nemendur fræðslu um algengustu íþróttameiðsl og heilsusamlegt líferni. Einnig er fjallað um mikilvægi góðs mataræðis.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
undirstöðuatriðum varðandi þjálfun líkamans
mikilvægi hreyfingar fyrir líkamann og gildi hennar í daglegu lífi
mikilvægi hollrar fæðu, hvíldar og svefns fyrir heilbrigðan lífsstíl
áhrifum hreyfingar á líkamlega jafnt sem andlega vellíðan
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
skipuleggja líkamsþjálfun
velja mataræði með tilliti til líkamlegrar hreyfingar og lífstíls
velja æfingar sem byggja upp þol, styrk og liðleika
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skipuleggja sína eigin þjálfun með það að markmiði að bæta líkamlega og andlega heilsu
stunda heilbrigðan lífsstíl hvað varðar mataræði, svefn og hvíld