Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1436216236.53

    Raflagnir grunndeildar rafiðna A
    RAFL1GA03
    4
    Raflagnir og efnisfræði rafiðna
    , Raflagnir, litakóðar, raflagnaefni, verkfæri
    Samþykkt af skóla
    1
    3
    Nemandinn kynnist vel starfi og starfssviði rafiðnaðarmannsins, öðlist skilning á eðlisfræðilegri hegðun rafmagns og fræðist um virkni ólíkra rofa með tengi- og smíða verkefnum. Einnig kynnist hann því efni sem notast er við í einfaldar raflagnir. Nemandinn fær fræðslu um öryggismál og honum kynntar reglugerðir sem gilda fyrir fagið.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Öryggismálum og reglugerðum er varða vinnu við rafmagn.
    • Verkfærum rafiðnarmannsins og helstu störfum.
    • Skilning á virkni mismunandi rofa
    • Helstu teiknitáknum
    • Litakóða víra
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Tengja rofa, samrofa, krónurofa og krossrofa
    • Leggja kapallagnir fagmannlega á lítið spjald
    • Leggja röralagnir fagmannlega á lítið spjald
    • Tengja falir klær og fjöltengi
    • Beita réttum verkfærum
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Geta valið einfaldan lagnabúnað með tilliti til aðsæðna.
    • Geta greint mun á faglegum og ófaglegum vinnubrögðum.
    • Gæta fyllsta öryggis í umgengni við rafmagn.
    Byggt á verkefnvinnu,skýrslu og prófum. Lámarkeinkunn er 5.