Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1436216784.53

    Raflagnir grunndeildar rafiðna C
    RAFL2GC03
    2
    Raflagnir og efnisfræði rafiðna
    Greinatöflur
    Samþykkt af skóla
    2
    3
    Í áfanganum er aðaláhersla á varbúnað, vírsverleika og rafdreifiskápa. Farið er í uppbyggingu á minni húsveitum, staðsetningu á búnaði , lagnaleiðir og brunaþéttingar kynntar. Innfeldar og áfelldar lagnir. Farið er í reglugerðarákvæði varnarráðstafana sem varða snerti og brunahættu. Lögð er áhersla á skilning nemanda á varbúnaði, bruna og snertihættu. Nemendur fá þjálfun í notkun mælitækja og lögð er áhersla á fagmannleg vinnubrögð.
    RAFL1GB 03 Raflagnir grunndeildar rafiðna B
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Hættu á skemmdum á búnaði þegar mælitækjum er beitt.
    • Reglum um sverleika leiðara miðað við áraun og staðla sem um það gilda.
    • Reglum um varráðstafanir er varðar snerti og brunahættu.
    • Mælitækjum sem notuð eru við bilanaleit.
    • Uppbyggingu minni veitna og mikilvægi efnisvals í þær.
    • Öryggi þess að hafa skipulag og þrifarlegt á vinnustaðnum.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Mæla einangrunarbilun og spennur í veitum
    • Leggja rör og strengi og ganga frá dreifiskáp.
    • Lesa úr uppdráttum og fyrirmælum.
    • Tengja ýmsar gerðir fjarrofa.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Leggja raflagnir í minni veitur.
    • Vinna eftir fyrirmælum.
    • Gera sér grein fyrir röð varnarráðstafana í húsveitum.
    • Ákveða vírsverleika lagna.
    • Einangra, mæla og finna bilun í húskerfi.
    Verkefnavinna og próf. Lámarkseinkunn í áfanganum er 5.