Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1436217105.68

    Rafmagnsfræði og mælingar grunndeild A
    RAFM1GA05
    2
    Rafmagnsfræði og mælingar
    Almenn rafmagnsfræði
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Farið er í helstu hugtök og lögmál rafmagnsfræði jafnstraums. Lögð er áhersla á að nemendur læri að nýta sér þessi lögmál við reikninga og gerðar prófanir á þeim með mælingum í jafnstraumsrásum. Farið er yfir mismunandi gerðir spennugjafa auk þess sem nemendur eiga að þekkja helstu teiknitákn í einföldum jafnstraumsrásum.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Helstu hugtökum, s.s. straumi, spennuog viðnámi.
    • Teiknitáknum fyrir mæla, spennugjafa og ýmsar gerðir viðnáma.
    • Helstu lögmálum, s.s. Ohms- Kirkhoffs- og afllögmáli.
    • Helstu forskeytum eininga, s.s. milli, míkró, nanó o.s.frv
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Framkvæma reikninga í einföldum jafnstraumsrásum.
    • Teikna einfaldar jafnstraumsrásir.
    • Nota fjölsviðsmæli.
    • Tengja einfaldar jafnstraumsrásir.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Tengja einfaldar jafnstraumsrásir eftir teikningu og framkvæma mælingar á þeim.
    • Reikna einfaldar jafnstraumsrásir og sannprófa niðurstöður með notkun lögmála og/eða mælingum.
    Gert er ráð fyrir að námsmat sé margþætt þannig að hægt sé að prófa skilning á efni, reikningum, mælingum og skýrslum.