Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1436217157.35

    Rafmagnsfræði og mælingar grunndeildar B
    RAFM2GB05
    3
    Rafmagnsfræði og mælingar
    Grunndeild B
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Farið er í hvernig riðstraumur verður til og hegðar sér auk helstu spennu/straum gilda í riðstraum. Farið í helstu hugtök og lögmál rafmagsfræði riðstraums. Lögð áhersla á að nemendur geti nýtt sér þessi lögmál til lausna á verkefnum bæði í reikningi og með mælingum. Farið er í helstu teiknitákn í riðstraumsrásum með þéttum, spólum og viðnámum. Nemendur læri hvað fasvik er og geti reiknað það, mælt og leiðrétt. Kennd er notkun helstu mælitækja í riðstraum svo sem sveiflsjá og tíðnigjafa auk þess sem nemendur skulu læra að nýta sér hermiforrit til mælinga.
    RAFM1GA5
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Helstu lögmálum í riðstraumsrásum svo sem spanlögmáli Faradeys og Lenz lögmáli.
    • Helstu gildum sem notuð eru svo sem toppgildi, virkt gildi, meðalgildi.
    • Teiknitáknum í span og rýmdar rásum.
    • Helstu reikningum í riðstraumsrásum.
    • Fasviki.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Reikna einfaldar riðstraumsrásir með rýmd og spani.
    • Notkun helstu mælitækja fyrir riðstraumsrásir.
    • Teikna og tengja einfaldar riðstraumsrásir.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Tengja upp einfaldar riðstraumsrásir eftir teikningum og framkvæma á þeim mælingar.
    • Reikna einfaldar riðstraumsrásir og sannprófa niðurstöður með lögmálum og/eða mælingum.
    • Tengja og framkvæma mælingar á riðstraumsrásum með hjálp hermiforrits.
    • Skrifa skýrslu um mælingar og niðurstöður þeirra.
    Námsmat Gert er ráð fyrir að námsmat sé margþætt þannig að hægt sé að prófa skilning á efni, reikninga, mælingar og skýrslur.