Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1436217202.86

    Rafmagnsfræði og mælingar grunndeildar C
    RAFM2GC05
    4
    Rafmagnsfræði og mælingar
    Grunndeld C
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Lögð er áhersla á að nemendur fái þjálfun í reikningum á RLC-rásum varðandi riðstraumsviðnám, samviðnám, spennuföll og fasvik bæði í hliðtengdum og raðtengdum rásum. Læri um desebelútreikninga og notkun þeirra. Læri um helstu síur og hvernig hægt er að búa þær til úr RLC-rásum og framkvæma reikninga á þeim. Auk þess skulu nemendur kynnast umhverfisháðum viðnámum og táknum fyrir þau. Nemendur framkvæma einnig mælingar á síum og öðrum RLC rásum bæði með hjálp mælitækja og hermiforrits.
    RAFM2GB05 Rafmagnfræði og mælingar grunndeildar B
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Hvernig riðstraumsrásir með spólum og þéttum hegðar sér við breytilega tíðni.
    • Virkni helstu sía.
    • Virkni umhverfisháðra viðnáma.
    • Desebel útreikningum og logarithmiskum kvarða.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Framkvæma alla helstu reikninga í rað- og hliðtengdum RLC-rásum.
    • Segja til um hvernig viðám og fasvik svona rása breytist með tíðni.
    • Tengja og mæla í RLC-rásum.
    • Reikna/hanna einfaldar síur.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Tengja eftir teikningu og mæla í RLC-rásum bæði raðtengdum og hliðtengdum.
    • Hanna einfaldar síur með þéttum viðnámum og spólum og gera á þeim mælingar.
    • Gera mælingar á RLC- rásum yfir ákv. tíðnisvið og geta sett niðurstöður fram ídesebelum og í logaritmiskum kvarða.
    • Nýta sér hermiforrit til mælinga á rásum.
    • Geta sett niðurstöður mælinga fram í skýrsluformi.
    Gert er ráð fyrir að námsmat sé margþætt þannig að hægt sé að prófa skilning á efni, reikninga, mælingar og skýrslur.