Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1436217264.38

    Rafmangsfræði og mælingar grunndeildar D
    RAFM3GD05
    7
    Rafmagnsfræði og mælingar
    Grunndeild D
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur geti leyst einföld verkefni sem tengjast notkun á raforku og hvernig raforka breytist í ljós, hita og hreyfiorku. Farið er í uppbyggingu og virkni ýmissa véla, tækja og búnaðar og gerðar tengimyndir og kynnt teiknitákn fyrir þau. Kenndar eru jafngildismyndir fyrir rafrásir í jafnstraumskerfum og einfasa riðstraumskerfum. Farið er í mismunandi áraun rafbúnaðar við ræsingu, tómagang og fullt álag. Farið er í þriggja fasa rafbúnað og tengingar. Þá er fjallað um mælitæki og tengingu þeirra og leyst einföld verkefni er varða rekstur spenna, tækja og véla.
    RAFM 2 GC05 Rafmagsfræði og mælingar grunndeildar C
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Jafngildismyndum jafnstraumskerfa ásamt táknum í teikningum.
    • Eiginleikum tækja og búnaðar í ræsingu og tómgangi.
    • Breytingu raforku í ljós, hita og hreyfiorku.
    • Tengimyndum þriggja fasa riðstraumsrása ásamt táknum í teikningum.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Nýta sér hermiforrit fyrir vélar og rásir.
    • Gera tengimyndir og jafngildismyndir.
    • Reikna álag fyrir mismunandi ræsingar véla og spenna.
    • Nota helstu mælitæki sem notuð eru við rekstur véla og spenna.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Gera jafngildismyndir og lesa úr teikningum.
    • Velja ræsingu hreyfla við mismunandi notkun.
    • Gera bilanaleit og velja varbúnað.
    • Velja viðeigandi ræsibúnað.
    • Tengja á mismunandi gerðir rafvéla.
    • Velja mælitæki til mælinga í bilanaleit.
    Gert er ráð fyrir að námsmat sé margþætt þannig að hægt sé að prófa skilning á efni, reikninga, mælingar og skýrslur.