Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1436217322.91

    Rafmagnsfræði og mælingar rafvirkjabraut A
    RAFM3RE05
    6
    Rafmagnsfræði og mælingar
    Rafvirkjun E
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Í þessum áfanga er fjallað um framleiðslu á þrífasa spennu. Sýnt er hvernig sínuslaga spenna myndast í þrífasa rafölum og vektormyndir þeirra. Farið er yfir myndun hverfisegulsviðs og áhrif þess í rafvélum. Fjallað er um tengingar á þrífasa spennum og vélum og gerðar tengimyndir af þeim. Gerð er grein fyrir helstu þrífasa mælitækjum og tengingu þeirra og fjallað um áhrif bilana á rekstur þrífasa kerfa. Leyst eru einföld verkefni er varða rekstur þrífasa spenna, tækja og véla. Þá er farið í þrífasa rafmótora, rafala, spenna, rafvélar, og tæki.
    RAFM 3 GC 05 Rafmagnsfræði grunndeildar D
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Myndun þrífasa hverfisegulsviðs
    • Tengingum þrífasa spenna, tækja og véla
    • Töpum í þrífasa búnaði
    • Fasviki í þrífasa búnaði og leiðréttingu á því
    • Virknimyndum þrífasa búnaðar
    • Vektormyndum þrífasa búnaðar
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Teikna tengimyndir þrífasa spenna, tækja og vél
    • Teikna vektoramyndir þrífasa búnaðar
    • Reikna strauma, spennur, afl og fasvik í þrífasa búnaði
    • Reikna stærð á búnaði til að leiðrétta fasvik í þrífasa kerfum
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Lesa leiðbeiningar og merkiskilti ýmiskonar þrífasa búnaðar
    • Tengja þrífasa búnað við veitukerfi eftir upplýsingum á merkiskilti viðkomandi tækis
    • Leiðbeint um val á búnaði og lögnum í viðkomandi veitukerfi
    Verkefnavinna og próf. Lágmarkseinkunn í áfanganum er 5.