Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1436217439.74

    Rafmagnsfræði og mælingar Rafvirkjabraut B
    RAFM3RF05
    5
    Rafmagnsfræði og mælingar
    Rafvirkjun F
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Í þessum áfanga er fjallað um skipulag raforkukerfa, þ.e. framleiðslu, flutning og dreifingu og fjallað um uppbyggingu mismunandi raforkudreifikerfa m.a. með tilliti til öryggisráðstafana. Farið er í uppbyggingu helstu lágspennudreifikerfa hér á landi og gerð jafngildismynd af hverjum flokki. Farið er yfir vektormyndir lágspennudreifikerfa og merkingar slíkra kerfa samkvæmt stöðlum (CENELEC). Fjallað er um spennufall og afltap í lágspennudreifikerfum og helsta varnarbúnað og virkni hans. Einnig er fjallað um mismunandi álag í fjölfasakerfum, mikilvægi álagsjöfnunar og áhrif mismunandi álags í fjölfasa lágspennudreifikerfum. Þá er gerð grein fyrir áhrifum jarðskautsviðnáms og hringrásarviðnáms á bilunarstrauma í neysluveitum. Fjallað er lítillega um háspennukerfið og þeim öryggiskröfum sem þar gilda.
    RAFM 3 RE05 Rafmagnsfræði og mælingar Rafvirkjabraut A
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Framleiðslu, flutning og dreifingu á raforku í mismunandi þrífasa lágspennukerfum
    • Varnar- og öryggisbúnaði í þessum kerfum
    • Nauðsyn jarðtenginga og spennujöfnunar í veitukerfum
    • Viðbrögðum við mismunandi álagi í kerfunum
    • Þekkja til háspennukerfisins
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Reikna strauma, spennur, afl og fasvik í mismunandi veitukerfum við mismunandi álag
    • Teikna tengi- og vektoramyndir af mismunandi veitukerfum og álagi þeirra
    • Leysa flóknari verkefni með ójafnlægu álagi
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Leiðbeina um val á réttum búnað eftir aðstæðum í viðkomandi raforkukerfi
    • Velja réttar lausnir við uppsettningu á mismunandi álagi í mismunandi veitukerfum
    • Skipuleggja aðgerðir við lausn á ójafnlægu álagi og lægfæringum á fasviki álags
    Verkefnavinna og próf. Lágmarkseinkunn í áfanganum er 5.