Áfanginn er framhald af RATM2GR05 og er hér haldið áfram að fjalla um BJT transistora. Þeir eru nú skoðaðir sem magnarar í mismunandi tengingum. Einnig er farið í aðra hálfleiðaraíhluti svo sem díak triak og týristor og virkni þeirra og notkun skoðuð. Nemendur kynnast einnig FET - transistorum og aðgerðamögnurum í þessum áfanga, helstu reikningum og notkunarmöguleikum þeirra. Nemendur gera mælingar bæði með mælitækjum og hermiforriti.
RATM 2 GA 05 Rafeindatækni og mælingar grunndeildar rafiðna A
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Hvernig hægt er að nota BJT transistora sem magnara og geta reiknað út helstu stærðir í þeim og framkvæmt mælingar.
Hvernig Diak, Triak og Tyristor virka, tákn og helstu notkunarmöguleika.
Táknum og DC-reikningum varðandi FET transistora.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Framkvæma alla helstu reikninga varðandi BJT transistora bæði AC og DC.
Framkvæma DC-reikninga í rásum með FET-transistorum.
Framkvæma mælingar á rásum með hinum ýsmu hálfleiðaraíhlutum.
Reikna mögnun í aðgerðamagnararásum.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Tengja eftir teikningu allar helstu gerðir magnara með BJT-transistorum og framkvæma á þeim reikninga og mælingar bæði hvað varðar AC-og DC.
Tengja eftir teikningu magnara með FET-transistorum og gera á honum DC-reikninga og mælingar.
Nýta sér hermiforrit við gerð mælinga og sett niðurstöður mælinga fram í skýrslu.
Geta tengt og framkvæmt mælingar á magnararás með aðgerðarmagnara.
Geta tengt eftir teikningu og framkævmt mælingar á rásum með öðrum hálfleiðaraíhlutum svo sem diak, triak og týristor.
Gert er ráð fyrir að námsmat sé margþætt þannig að hægt sé að prófa skilning á efni, reikninga, mælingar og skýrslur.