Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1436218000.17

    Stýritækni grunnnáms A
    STÝR1GA05
    2
    Stýritækni rafiðna
    PLC tölvur, Stýringar, ladder, rökrásir, segulrofar, tímaliðar
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Í þessum áfanga er fjallað um grunnvirkni og notkun rofa og segulliða, rofa- og snertitækni kynnt. Fjallað er um virkni og notkun segulliða í stýrirásum og kraftrásum og tímaliða í stýrirásum. Farið er í undirstöðuatriði við gerð á einlínu- og fjöllínumyndum svo og tákn og staðla sem notaðir eru við gerð teikninga fyrir segulliðastýringar. Mikilvægt er að nemendur kynnist tölvuforriti til teikninga á rásum segulliða. Áhersla er lögð á verkefnavinnu og verklegar æfingar þar sem nemendur brjóta verkefni til mergjar, tengja, prófa og mæla og taka saman niðurstöður. Einnig er lögð áhersla á að nemendur nýti sér mælitæki til að finna tengivillur og bilanir
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Einfaldri gerð rofa og segulliða.
    • Virkni og uppbyggingu segulliða.
    • Virkni og gerð tímaliða, seinn inn og seinn út.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Lesa einfaldar einlínu- og fjöllínuteikningar.
    • Hanna minni og einfaldar rofa- og segulliðastýringar.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Tengja einfaldar stýrirásir.
    • Nota mælitæki fyrir einfaldar stýrirásir
    Verkefnavinna og próf. Lágmarkseinkunn í áfanganum er 5.