Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1436218122.53

    Stýritækni grunnnáms C
    STÝR3GC05
    3
    Stýritækni rafiðna
    Grunndeild C
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Í áfanganum eru kynnt helstu stýrikerfi sem notuð eru í iðnstýringum, þ.e. segulliðastýringar, loftstýringar, rafeindastýringar og iðntölvustýringar og farið dýpra í segulliðastýringar, þ.e. kraft- og stýrirásir, heldur en gert var í STYR1A5. Farið er yfir virkni og notkun yfirálagsvarna, mótorvarrofa og varnarbúnaðar sem notaður er í kraft- og stýrirásum. Haldið er áfram með teikningar og staðla sem og kennslu teikniforrita fyrir segulliðastýringar (t.d. Acad og/eða PCschematic). Farið er yfir notkun tengilista og tengilistanúmera, strengja- og víramerkingar. Kynntar eru nokkrar ræsiaðferðir rafmótora, svo sem Y/D-ræsing, Dahlander-ræsing, bein ræsing og mjúkræsingar. Námið í áfanganum byggist að miklu leyti á verkefnavinnu og verklegum æfingum þar sem nemendur brjóta verkefni til mergjar, tengja, prófa og mæla og taka saman niðurstöður. Lögð er áhersla á að nemendur nýti sér mælitæki til að finna tengivillur og bilanir.
    STÝR2GB05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Helstu stýrikerfum sem notuð eru í iðnstýringum.
    • Notkun og virkni á yfirálagsvörnum fyrir rafmótora, mótorvarrofa og varnarbúnað sem notaður er í tengslum við kraft- og stýrirásir.
    • Notkun og virkni endastoppsrofa, flotrofa og neyðarstoppsrofa.
    • • Notkun og virkni á þrýstiliðum og segullokum.
    • Notkun á tengilistum og tengilistanúmerum.
    • Notkun á merkingum, þ.e. víra- og strengjamerkingum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Nota nokkrar ræsiaðferðir fyrir rafmótora.
    • Nota teikniforrit fyrir stýrirása- og kraftrásateikningar.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Framkvæma bilanaleit í segulliðastýringum.
    • Skilja upplýsingar af skiltum rafmótora.
    • Tengja stýri- og kraftrásir skammhlaups-mótora.
    Gert er ráð fyrir að námsmat sé margþætt þannig að hægt sé að prófa skilning á efni, reikninga, mælingar og skýrslur.