Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1436218193.17

    Stýritækni rafvirkjabraut
    STÝR3RD05
    4
    Stýritækni rafiðna
    Rafvirkjun D
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Í áfanganum kynnast nemendur skynjaratækni og ýmsum gerðum skynjara, svo sem spanskynjara, rýmdarskynjara, þrýstiskynjara, hitaskynjara og hæðarskynjara. Þeir kynnast nokkrum gerðum af iðntölvum og notkun þeirra í iðnstýringum sem og tengingu þeirra við ýmsan jaðarbúnað, svo sem skjámyndakerfi. Megináherslan er lögð á að nemendur læri að skilja virkni og uppbyggingu iðntölva og fái undirstöðuþjálfun í forritun og notkun forritunartækja og forritunarhugbúnaðar fyrir smærri iðntölvur. Þá er lögð áhersla á að þeir læri gerð flæðimynda fyrir stýringar, fái æfingu í gerð teikninga af iðntölvum og tengimynda fyrir þær sem og þann búnað sem þeim tengist. Auk þessa fer fram verkefnavinna og verklegar æfingar þar sem nemendur brjóta viðfangsefni áfangans til mergjar, tengja, prófa, mæla og taka saman niðurstöður. Lögð er áhersla á notkun mælitækja til að finna tengivillur og bilanir.
    STÝR3GC05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Skynjaratækni með áherslu á virkni rýmdar-, span-, hita-, hæðar- og þrýstiskynjara.
    • Helstu gerðum iðntölva, notkun þeirra í iðnstýringum og tengingu þeirra við ýmsan jaðarbúnað, svo sem skjámyndahugbúnað
    • Uppbyggingu og virkni á litlum iðntölvum.
    • Gerð flæðimynda fyrir stýringar.
    • IEC 1131-staðlinum sem gildir fyrir forritun á iðntölvum.
    • Forritunartækjum og forritunarhugbúnað fyrir iðntölvur.
    • Helstu grunnskipanir í ladder-forritun.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Nota spennugjafa, grunneiningar, stafrænar inn- og útgangseiningar.
    • Umrita segulliðastýringar yfir í ladder-forrit.
    • Teikna tengimyndir af iðntölvum og þeim búnaði sem tengist þeim, t.d rofum og segulliðum, inn- og útgöngum.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Framkvæma bilanaleit í segulliðastýringum og iðntölvustýringum.
    • Tengja iðntölvur og búnað sem tengist þeim á inn- og útgöngum.
    • Tengja stýri- og kraftrásir skammhlaups-mótora.
    Verkefnavinna og próf. Lágmarkseinkunn í áfanganum er 5.