Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1436218295.47

    Tölvu- og nettækni grunndeildar A
    TNTÆ1GA03
    2
    Tölvu og nettækni grunnnáms rafiðna
    Tölvur, netkerfi, rökrásir
    Samþykkt af skóla
    1
    3
    Í áfanganum kynnist nemandinn samsetningu einkatölvu. Farið er í byggingarhluta tölvu og hlutverk þeirra. Gengið er frá uppsetningu á stýrikerfi og notendahugbúnaði fyrir tölvu. Áfanginn er einnig kynning á stafrænni tækni og beitingu hennar við tæknileg úrvinnsluefni. Nemendur kynnast rökhugtökum, mismunandi talnakerfum, Boole-framsetningu og teiknistöðlum. Reikniaðferðir rökrása eru kynntar og kóðar. Nemendur læra að nota sannleikstöflur og bólskar-jöfnur til að skilgreina virkni rökrása.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Helstu byggingarhlutum tölvu og helsta hlutverki þeirra.
    • Helstu stýrikerfium og geti sett þau upp.
    • Helstu notendaforritum.
    • Helstu hugtökum stafrænnar tækni.
    • Talnakerfum sem notuð eru í stafrænni tækni.
    • Helstu reikniaðferðum rökrása.
    • Bólskum-jöfnum sem skilgreina virkni rökrása.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Setja saman tölvu úr byggingarhlutum sínum.
    • Forsníða harðan disk
    • Setja upp stýriforrit.
    • Skilgreina virkni einfaldra rökrása.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Bera kennsl á helstu bilanaeinkenni í tölvu.
    • Leggja mat á gildi hinna ýmsu hugtaka við mat á afkastagetu tölvu.
    • Lesa virkni einfaldra rökrása.
    • Hanna rökrás út frá skilyrtri virkni.
    • Skilja einfaldar rökrásir
    Gert er ráð fyrir að námsmat sé margþætt þannig að hægt sé að prófa skilning á efni, reikninga, mælingar og skýrslur.