Áfanginn miðar af því að nemendur nýti sér markaðsfræði og hugmyndafræði hennar, sem verkfæri til að markaðssetja vörur og þjónustu. Sérstaklega mikilvægi markaðsstarfs í síbreytilegu umhverfi og afstöðu fyrirtækja til ýmissa þátta í rekstri.
Nemendur vinna út frá eigin viðskiptahugmynd og tileinka sér gagnrýna og skapandi lausnarhugsun og öðlast með því færni í að miðla eigin hugmyndum og skoðunum. Nemendur tengja saman hugmyndafræði markaðsfræðinnar og aðferðafræði við markaðssetningu eigin hugmyndar eða verkefnis og nýta við sölu, verðlagningu, vöruþróun og kynningu.
MARK2AM05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
tilgangi og hugmyndafræði markaðsfræðinnar
þýðingu markaðsstarfs fyrir fyrirtæki og samfélög
helstu þáttum almenns markaðsstarfs
helstu hugtökum og hugmyndum varðandi vöru og vöruþróun
helstu samkeppnisformum og mikilvægustu atriðum samkeppnisgreiningar
nýtingu mismunandi greiningartækja og vinnubragða við áætlanagerð
gerð markaðs-, viðskipta- og kynningaráætlana
nýtingu helstu markaðsmiðla í nær-og fjarsamfélagi
mikilvægi á góðri skipulagningu og skrásetningu við framkvæmd verkefna
hugmyndum um kaupvenjur á neytendamarkaði og fyrirtækjamarkaði
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
virkja hugmyndaflugið og þróa eigin hugmyndir og verkefni
nýta sér hugmyndafræði og aðferðafræði markaðsfræðinnar við markaðssetningu á eign verkum og hugmyndum
kynna eigin hugmyndir og verkefni og tjá sig um eigin verk og annarra
stunda markvissa skýrslugerð
gerð markaðs-, viðskipta- og kynningaráætlana
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
gera markaðs-, kynningar- og viðskiptaáætlanir sem hentar viðskiptahugmynd þeirra
tileinka sér skapandi lausnahugsun sem hann getur yfirfært og nýtt bæði í leik og starfi
öðlast aukna trú á sjálfan sig í skapandi vinnu og þora að stíga út fyrir þægindarammann og vinna með eigin hugmyndir á sjálfstæðan og persónulegan hátt
tjá sig og miðla þekkingu, hugmyndum og skoðunum fyrir framan hóp, bregðast við gagnrýni og sýna útsjónarsemi í óvæntum aðstæðum
Í áfanganum er viðhaft leiðsagnarmat með símati alla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar og þess vegna er það mikilvægt að nemendur stundi námið reglulega.