Viðfangsefni áfangans er knattspyrna og eru kennslutímarnir að mestu verklegir. Lesefni, myndbönd o.fl. tengt viðfangsefninu verður sett á moodle og nemendur vinna fjölbreytt verkefni (einstaklings, hópa, umræðuþræðir o.fl.). Í áfanganum verður farið í a.m.k. eina æfinga- og/eða keppnisferð til Akureyrar. Í áfanganum verður lögð sérstök áhersla á eftirfarandi leikfræðileg atriði, þ.e. 1. og 2. varnar- og sóknarmaður.
ÍÞRF2ÞJ05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
mikilvægi góðrar og vel uppsettrar upphitunar sem hluti af æfingu
reglunum knattspyrnunnar
því hvað 1. og 2. varnar- og sóknarmaður eru og hvernig þeir annars vegar vinna sína grunnvinnu og hins vegar hvernig þeir vinna saman
nýtingu spils í fámennum liðum til að þjálfa tækni- og leikfræðileg atriði, s.s. 1. og 2. varnar- og sóknarmaður
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
framkvæma góða og skipulagði upphitun til undirbúnings fyrir æfingu og keppni
útfæra og framkvæma leikfræðileg atriði með mismunandi erfiðleikastigi æfinga, þ.e. frá einföldum til flókinna æfinga
meta knattspyrnureglurnar við að horfa á kappleiki og dæma hjá samnemendum
meta getu iðkenda til að velja rétt erfiðleikastig æfinga til að þjálfa leikfræðileg atriði knattspyrnunnar, s.s. 1. og 2. varnar- og sóknarmaður
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
bæta sig sem knattspyrnumaður
meta og velja réttar æfingar til að þjálfa ákveðin tækni- og leikfræðileg atriði
meta og velja spilaform í fámennum liðum til að þjálfa mismunandi tækni- og leikfræðileg atriði
sjá tilganginn með og geta skilið hvernig unnið er með mismunandi tækni- og leikfræðileg atriði í spili með fámennum liðum
geta tekið þátt í umræðum um viðfangsefnin á faglegan og uppbyggilegan hátt
Í áfanganum er viðhaft leiðsagnarmat með símati alla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar. Nemendur þurfa að uppfylla skilyrði um mætingu og virkni í tímum. Áfanginn er metinn út frá verkefnaskilum, mætingu, virkni, færni og áhuga.