Viðfangsefni áfangans er knattspyrna og eru kennslutímarnir að mestu verklegir. Lesefni, myndbönd o.fl. tengt viðfangsefninu verður sett á moodle og nemendur vinna fjölbreytt verkefni (einstaklings, hópa, umræðuþræðir o.fl.). Í áfanganum verður farið í a.m.k. eina æfinga- og/eða keppnisferð til Akureyrar. Í áfanganum verður lögð sérstök áhersla á eftirfarandi tækniatriði, þ.e. knattrak, knattmeðferð, sendingar og móttöku.
ÍÞRF2ÞJ05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
mikilvægi góðrar og vel uppsettrar upphitunar sem hluti af æfingu
reglunum knattspyrnunnar
hvernig tækniatriði knattspyrnu eru þjálfuð með mismunandi erfiðleikastigum, þ.e. frá einföldum æfingum til flókinna æfinga
nýtingu ólíks spilaforms til að þjálfa tækni- og leikfræðileg atriði
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
framkvæma góða og skipulagði upphitun til undirbúnings fyrir æfingu og keppni
útfæra og framkvæma tækniatriði knattspyrnunnar, allt frá einföldum til flókinna atriða
meta knattspyrnureglurnar við að horfa á kappleiki og dæma hjá samnemendum
meta getu iðkenda til að velja rétt erfiðleikastig æfinga til að þjálfa tækniatriði
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
bæta sig sem knattspyrnumaður
meta og velja réttar æfingar til að þjálfa ákveðin tækni- og leikfræðileg atriði
meta og velja ólík spilaform til að þjálfa mismunandi tækni- og leikfræðileg atriði
geta tekið þátt í umræðum um viðfangsefnin á faglegan og uppbyggilegan hátt
Í áfanganum er viðhaft leiðsagnarmat með símati alla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar. Nemendur þurfa að uppfylla skilyrði um mætingu og virkni í tímum. Áfanginn er metinn út frá verkefnaskilum, mætingu, virkni, færni og áhuga.