Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1438791743.46

    Knattspyrnuakademía 06
    KNAT3KF02
    16
    knattspyrna
    Knattspyrnuakademía 06
    Samþykkt af skóla
    3
    2
    Viðfangsefni áfangans er knattspyrna og eru kennslutímarnir að mestu verklegir. Lesefni, myndbönd o.fl. tengt viðfangsefninu verður sett á moodle og nemendur vinna fjölbreytt verkefni (einstaklings, hópa, umræðuþræðir o.fl.). Í áfanganum verður farið í a.m.k. eina æfinga- og/eða keppnisferð til Akureyrar. Í áfanganum verður lögð sérstök áhersla á eftirfarandi tækni og leikfræðileg atriði, þ.e. einleikur eða samspil í sóknarleiknum og pressa eða völdun í varnarleiknum.
    ÍÞRF2ÞJ05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • mikilvægi góðrar og vel uppsettrar upphitunar sem hluti af æfingu
    • reglum knattspyrnunnar
    • hvað hugtökin einleikur, samspil, pressa og völdun eru og mikilvægi þeirra í sóknar- og varnarleik í knattspyrnu
    • nýtingu spils í fámennum liðum til að þjálfa einleik og samspil í sóknarleik og pressa og völdun í varnarleik
    • muninum á annars vegar einleik og samspili í sóknarleik og hins vegar á pressu og völdun í varnarleik
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • framkvæma góða og skipulagði upphitun til undirbúnings fyrir æfingu og keppni
    • útfæra og framkvæma leikfræðileg atriði með mismunandi erfiðleikastigi æfinga, þ.e. frá einföldum til flókinna æfinga
    • meta knattspyrnureglurnar við að horfa á kappleiki og dæma hjá samnemendum
    • meta hvort einleikur eða samspil í sóknarleik sé rétt í mismunandi aðstæðum í leik, bæði í fámennum sem og fjölmennum liðum
    • meta hvort pressa eða völdun í varnarleik sé rétt í mismunandi aðstæðum í leik, bæði í fámennum sem og fjölmennum liðum
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • bæta sig sem knattspyrnumaður
    • meta og velja réttar æfingar til að þjálfa ákveðin tækni- og leikfræðileg atriði
    • meta og velja spilaform í fámennum liðum til að þjálfa mismunandi tækni- og leikfræðileg atriði
    • geta útskýrt og leiðbeint um hvort annars vegar einleikur eða samspil og hins vegar pressa eða völdun sé rétt í mismunandi aðstæðum í leik og þá af hverju
    • geta tekið þátt í umræðum um viðfangsefnin á faglegan og uppbyggilegan hátt
    Í áfanganum er viðhaft leiðsagnarmat með símati alla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar. Nemendur þurfa að uppfylla skilyrði um mætingu og virkni í tímum. Áfanginn er metinn út frá verkefnaskilum, mætingu, virkni, færni og áhuga.