Í áfanganum eiga nemendur að læra að kenna börnum og unglingum undirstöðuatriði í golfi. Notast er við SNAG kennslutækni fyrir byrjendur. Lögð er áhersla á kennslu golfsveiflu og leikfræði fyrir byrjendur. Stefnt er að því að nemendur öðlist ákveðna grundvallarfærni í greininni. Áfanginn er bóklegur og verklegur. Nemendur þjálfist í kennslu í golfi. Efnisatriði: Golf, grip, golfsveifla, „vipp“, pútt, leikskipulag, sérhæfð þolþjálfun, leikreglur, teygjur, liðkun. Dómgæsla. Framkvæmd: Bókleg og verkleg, þar sem megináhersla er lögð á æfingakennslu nemenda.
ÍÞRF2ÞB05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
allri grunntækni í golfi
mismun á þjálfun barna, unglinga og fullorðinna í golfi
keppnisreglum í golfi
undirbúningi og skipulagi golfæfinga
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
að undirbúa, skipuleggja og halda golfæfingu fyrir börn að tólf ára aldri
helstu tækniatriðum í golfi og kenna þessi atriði
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
undirbúa þjálfun og gera tímaseðil fyrir golfæfingu
skipuleggja þjálfun í golfi
Í áfanganum er skriflegt lokapróf og nemendur skila ýmsum verkefnum varðandi heimsóknir, æfingakennslu og tímaseðlagerð