Í áfanganum eiga nemendur að læra að kenna börnum og unglingum undirstöðuatriði í tennis. Lögð er áhersla á kennslu spaðatækni og leikfræði fyrir byrjendur. Stefnt er að því að nemendur öðlist ákveðna grundvallarfærni í greininni. Áfanginn er bóklegur og verklegur. Nemendur þjálfist í kennslu í tennis. Efnisatriði: Tennis, spaðatækni, tækniþjálfun, forhönd, bakhönd, uppgjöf, blak, leikskipulag, sérhæfð þolþjálfun, leikreglur, teygjur, liðkun. Dómgæsla. Framkvæmd: Bókleg og verkleg, þar sem megináhersla er lögð á æfingakennslu nemenda.
Nemendur hafi lokið ÍÞRF2ÞB05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
allri grunntækni í tennis
mismun á þjálfun barna, unglinga og fullorðinna í tennis
leikreglum í tennis
undirbúningi og skipulagi tennisæfinga
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
að undirbúa og framkvæma blakæfingu fyrir börn að 12 ára aldri
helstu tækniatriðum í tennis og vera fær um að kenna þessi atriði
dómgæslu í tennis
að kenna leikfræði í tennis
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
undirbúa þjálfun og gera tímaseðil fyrir tennisæfingu
skipuleggja þjálfun í tennis
dæma keppni hjá yngstu iðkendum
Í áfanganum er skriflegt lokapróf og nemendur skila ýmsum verkefnum varðandi heimsóknir, æfingakennslu og tímaseðlagerð.