Í áfanganum eiga nemendur að læra að kenna börnum og unglingum undirstöðuatriði knattspyrnu. Lögð er áhersla á kennslu knatttækni og leikfræði fyrir byrjendur. Stefnt er að því að nemendur öðlist ákveðna grundvallarfærni í greininni. Áfanginn er bóklegur og verklegur. Nemendur þjálfist í kennslu knattspyrnu. Efnisatriði: Knatttækni, tækniþjálfun, knattrak, sendingar, varnarstaða, varnarhreyfingar, skottækni, markmannsþjálfun, leikskipulag, sérhæfð þolþjálfun, leikreglur, teygjur. Dómgæsla. Framkvæmd: Bókleg og verkleg þar sem einnig er lögð áhersla á æfingakennslu nemenda.
Nemendur hafi lokið ÍÞRF2ÞB05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
allri grunntækni knattspyrnu
mismun á þjálfun barna, unglinga og fullorðinna í knattspyrnu
leikreglum í knattspyrnu
undirbúningi og skipulagi knattspyrnu
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
að undirbúa og framkvæma knattspyrnuæfingu fyrir börn að 12 ára aldri
helstu tækniatriðum knattspyrnu og að kenna þessi atriði
dómgæslu í knattspyrnu
að kenna leikfræði knattspyrnu
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skipuleggja þjálfun í knattspyrnu
dæma leiki hjá yngstu iðkendum
undirbúa þjálfun og gera tímaseðil fyrir knattspyrnu
Í áfanganum er skriflegt lokapróf og nemendur skila ýmsum verkefnum varðandi heimsóknir, æfingakennslu og tímaseðlagerð.