Í áfanganum eiga nemendur að læra að kenna börnum og unglingum undirstöðuatriði í badminton. Lögð er áhersla á kennslu í tækni og leikfræði fyrir byrjendur. Stefnt er að því að nemendur öðlist ákveðna grundvallarfærni í greininni. Áfanginn er bóklegur og verklegur. Nemendur þjálfist í kennslu í badminton. Efnisatriði: Badminton, fótavinna, uppgjafir, tækniþjálfun, forhönd og bakhönd, griptækni, stuttspil, stökkskot – skellur (smass), gabbhreyfingar, leikskipulag, sérhæfð þolþjálfun, leikreglur, teygjur, liðkun. Dómgæsla. Framkvæmd: Bókleg og verkleg þar sem megináhersla er lögð á æfingakennslu nemenda. Nemendur munu einnig spreyta sig á leikgreiningu í badminton.
Nemendur hafi lokið ÍÞF 103
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
allri grunntækni í badminton
mismun á þjálfun barna og fullorðinna í badminton
leikreglum í badminton
undirbúningi og skipulagi í badminton
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
að undirbúa og framkvæma badmintonæfingar fyrir börn að 12 ára aldri
helstu tækniatriðum í badminton og að kenna þessi atriði
dómgæslu í badminton
að kenna leikfræði í badminton
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
undirbúa þjálfun og gera tímaseðil fyrir badminton
skipuleggja þjálfun í badminton
dæma leiki hjá yngstu iðkendum
Í áfanganum er skriflegt lokapróf og nemendur skila ýmsum verkefnum varðandi heimsóknir, æfingakennslu og tímaseðlagerð.