Í áfanganum eiga nemendur að læra að kenna börnum og unglingum undirstöðuatriði í skvassi. Lögð er áhersla á kennslu í skvasstækni og leikfræði fyrir byrjendur. Stefnt er að því að nemendur öðlist ákveðna grundvallarfærni í greininni. Áfanginn er bóklegur og verklegur. Nemendur þjálfist í kennslu í skvassi. Efnisatriði: Skvass, fótavinna, tækniþjálfun, bakhönd og forhönd, uppgjafir, gabbhreyfingar, hindranir, leikskipulag, sérhæfð þolþjálfun, leikreglur, teygjur, liðkun. Dómgæsla. Framkvæmd: Bókleg og verkleg, þar sem megináhersla er lögð á æfingakennslu nemenda. Nemendur munu einnig spreyta sig á leikgreiningu í skvassi.
Nemendur hafi lokið IÞFR2ÞB05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
allri grunntækni skvassi
leikreglum í skvassi
undirbúningi og skipulagi
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
að undirbúa og framkvæma skvassæfingar
helstu tækniatriðum í skvassi og kenna þessi atriði
dómgæslu í skvassi
að kenna tækni og leikskipulag í skvassi
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
undirbúa þjálfun og gera tímaseðil fyrir skvass
skipuleggja þjálfun í skvassi
þekkja reglur skvassíþróttarinnar
Í áfanganum er skriflegt lokapróf og nemendur skila ýmsum verkefnum varðandi heimsóknir, æfingakennslu og tímaseðlagerð.