Réttarvísindi, sönnunargögn, fingraför, efnagreiningar, eiturlyf/eiturefni, blóð og DNA.
Farið verður yfir grunninn að réttarvísindum. Farið yfir nokkur af hinum margvíslegu sönnunargögnum sem að hægt er að safna á vettvangi glæps, t.d. jarðveg, hár, þræði, blóð og svo framvegis. Farið er yfir hvernig sönnunargögnin eru rannsökuð og hvernig fingraför eru tekin. Þá verður farið í helstu þætti efnagreiningar sem notaðir eru í réttarvísindum. Skoðað verður blóð og DNA. Einnig verður farið í blóðslettur og greiningar á þeim. Þá verða skoðuð gömul glæpamál.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
grunnathriðum réttarvísinda
helstu sönnunargögnum sem safnað er
hvernig fingraför eru tekin
blóði og DNA
blóðslettum og greiningu á þeim.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
framkvæma verklegar æfingar og vinna úr niðurstöðum þeirra
finna sönnunargögn
taka fingraför og lesa úr þeim
skoða blóðslettur og greina þær.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
sýna sjálfstæði í vinnubrögðum og bera ábyrgð á eigin námsframvindu
vinna í hóp til þess að auka skilning á fyrirbærum og ferlum í réttarvísindum
sjá notagildi réttarvísindanna.
Í áfanganum er leiðsagnarmat með símati alla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar og þess vegna er það mikilvægt að nemendur stundi námið reglulega.