Unnið er með undirstöðuaðgerðir í stærðfræði. Einnig er unnið með forgangsröð aðgerða, bókstafareikning, veldi, rætur, þáttun og liðun, fernings- og samokareglu. Leitast er við að tengja stærðfræði við daglegt líf nemenda.
STÆR1AA05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
algengum reiknireglum og bókstafareikningi
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
almennar reikniaðgerðir
bókstafareikningI
liðun og þáttun
nota vasareikni
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skrá lausnir skipulega
beita skipulegum aðferðum við lausnaleit
klæða verkefni í stærðfræðilegan búning, leysa þau og túlka lausnirnar
hagnýta stærðfræðilega þekkingu sína í daglegu lífi
Námsmat byggist á stöðuprófum, verkefnum og lokaprófi.