Það kom upp villa
senda inn
Áfangi
Áfangi Nánari upplýsingar
lestur, málfræði, ritun, stafsetning
Í þessum foráfanga er áhersla lögð á að nemandi öðlist færni í þeim málfræði- stafsetninga- og ritunarþáttum sem gerð er krafa um við lok grunnskóla.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- helstu undirstöðuatriðum í stafsetningu (viðmið lok 10. bekkjar)
- helstu undirstöðuatriðum í málfræði (viðmið lok 10. bekkjar)
- helstu undirstöðuatriðum í ritun lengri texta (viðmið lok 10. bekkjar)
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- flytja mál sitt skýrt og áheyrilega og geta tileinkað sér viðeigandi talhraða og fas
- geta gert sér grein fyrir eðli góðrar framsagnar og framburðar
- hlusta, taka eftir og nýta sér upplýsingar í töluðu máli til fróðleiks og skemmtunar
- fletta upp í handbókum, orðasöfnum og rafrænum orðabönkum
- greina aðalatriði í lesnum texta
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- átta sig á beygingarlegum og merkingalegum einkennum orðflokka
- geta gert sér grein fyrir hlutverki orðflokka í texta
- semja stutta texta af ýmsu tagi með viðeigandi málfari
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.