Það kom upp villa
senda inn
Áfangi
Áfangi Nánari upplýsingar
Fornbókmenntir á einföldu máli
íslenska sem annað mál
Bókmenntir á einföldu máli
Nemendur lesa eina Íslendingasögu og Snorra-Eddu, báðar í styttri, einfaldaðri útgáfu. Haldið áfram með setningafræði og stafsetningu.
Nemandi þarf að hafa lokið 10 feiningum í íslensku á 2. þrepi.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- helstu atriðum norrænnar goðafræði
- helstu áhrifum norrænnar goðafræði á bókmenntir og íslenskt mál
- þjóðfélagsgerð þjóðveldistímans
- helstu reglum við gerð heimildaritgerðar
- helstu stafsetningarreglum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- lesa einfaldar útgáfur á fornsögum
- afla sér þekkingar og upplýsinga varðandi heimildaritgerðir
- skrifa upp lesinn texta úr daglegu máli
- beita algengustu stafsetningarreglum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- tjá sig munnlega og skriflega um fornbókmenntir
- bera saman þjóðfélagsgerð þjóðveldistíma og nútíma
- skrifa heimildaritgerð
Hlutapróf, ritgerð og skriflegt lokapróf.