Í áfanganum verður lögð áhersla á lestur, hvort sem um ræðir fornan eða nútímalegan texta. Fjallað verður um sögu íslensks máls og helstu breytingar á því í gegnum aldirnar. Helstu hugtök í bókmenntafræði verða kennd og nemendur beita þeim við lestur. Helstu hugtökum í ritgerðarsmíð verða gerð skil og þeim beitt í ritun.
ÍSLE2HU05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
íslenskri málsögu frá upphafi fram á okkar daga
bókmenntatextum frá ólíkum tímum, m.a. Snorra-Eddu, Íslendingaþáttum o.fl.
helstu hugtökum í ritgerðarsmíð
helstu atriðum sem varða munnlega tjáningu og því að vera virkur í umræðum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
greina mismunandi einkenni ólíkra tungumála og ritkerfa í heiminum og þróun orðaforðans
gera grein fyrir upphafi tungumálsins og helstu breytingum sem orðið hafa á íslensku
lesa fornan texta t.d. Snorra-Eddu og Íslendingaþætti
lesa mismunandi nytjatexta og greina þá
rita rökfærsluritgerðir þar sem hann beitir gagnrýninni hugsun og kemur skoðunum sínum á framfæri á skýran og greinargóðan hátt
tjá sig munnlega og setja fram texta á skilmerkilegan hátt
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
sýna skilning á ýmis konar fornum texta og orðaforða hans
geta útskýrt og miðlað, munnlega og skriflega, þekkingu sinni á norrænni goðafræði
afla sér heimilda á sjálfstæðan hátt og nýta þær í ritun heimildaritgerðar
miðla hugmyndum sínum um gildi textanna og aðalatriði þeirra
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.