Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1444304123.78

    Einstaklingurinn og lífið
    FRAN1EL05
    43
    franska
    Einstaklingur og lífið
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Megináhersla er lögð á að kenna nemendum undirstöðuatriði tungumálsins. Færniþáttunum fjórum er sinnt jafnhliða eftir bestu getu og nemendur eru æfðir í að tala og skrifa um sjálfa sig, fjölskyldu sína, vini, áhugamál og nánasta umhverfi sitt. Einnig æfast þeir í samskiptum við ákveðnar aðstæður í daglegu lífi. Mjög mikil áhersla er lögð á framburðaræfingar studdar hlustun þar sem mikilvægt er að nemendur temji sér góðan framburð strax í byrjun frönskunámsins. Markviss uppbygging orðaforða og kennsla í málfræði fer fram með hliðsjón af samskiptamarkmiðum áfangans. Jafnframt er fléttað inn í námsefnið kynningu á Frakklandi og frönskumælandi þjóðum, franskri tungu og menningu. Einnig er fjallað lítillega um uppruna frönskunnar, útbreiðslu hennar í heiminum og hvernig hún nýtist sem alþjóðlegt samskiptamál.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • þeim orðaforða sem er nauðsynlegur til að ná leikni- og hæfnimarkmiðum áfangans
    • grundvallarþáttum franska málkerfisins
    • framburðarreglum og tónfalli tungumálsins
    • Frakklandi og öðrum frönskumælandi þjóðum og fengið innsýn í franska menningu, siði og samskiptavenjur
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • skilja talað mál um efni sem hann þekkir þegar talað er hægt og skýrt
    • fylgja einföldum fyrirmælum og skilja helstu kvejður og ávörp
    • lesa einfalda texta um efni, sem tengist daglegu lífi og inniheldur orðaforða áfangans
    • segja á einfaldan hátt frá sjálfum sér, fjölskyldu sinni, vinum og áhugamálum
    • taka þátt í stuttum samtölum um efni, sem hann þekkir eða hefur áhuga á og beita kurteisis-og málvenjum við hæfi
    • skrifa stutta, einfalda texta um sjálfan sig og nánasta umhverfi sitt, svo sem stuttar lýsingar og samtöl
    • tjá sig munnlega og skrifalega á einfaldan hátt um persónulega hagi og efni sem hann þekkir
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • greina einfaldar upplýsingar í mæltu máli
    • skilja meginatriði einfaldra texta og greina einfaldar upplýsinar
    • taka þátt í einföldum samræðum og nota mismunandi kveðjur og samskiptaform eftir aðstæðum
    • nýta þekkingu og leikni til að leysa úr viðfangsefnum einn eða í samstarfi við aðra
    • meta eigið vinnuframlag og framfarir
    • tileinka sér lifandi áhuga á frönskunáminu, franskri menningu og ólíkum menningarheimum
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.