Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1444305260.72

    Einstaklingurinn og lífið
    SPÆN1EL05
    68
    spænska
    Einstaklingurinn og lífið
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Í áfanganum er lögð áhersla á að þjálfa nemendur í að tjá sig munnlega og skriflega um almenn atriði er tengjast einstaklingnum, lífi hans og nánasta umhverfi. Byggður er upp grunnorðaforði og farið í framburðarreglur og grunnatriði málkerfisins. Fléttað er inn í námsefnið kynningu á þeim þeim löndum þar sem spænska er töluð, útbreiðslu hennar, uppruna og hvernig hún nýtist sem alþjóðlegt samskiptamál.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • grunnorðaforða sem þarf til að lýsa sjálfum sér, fjölskyldu sinni og sínu nánasta umhverfi í stórum dráttum munnlega og skriflega
    • orðaforða til að tjá sig í ræðu og riti um persónulega hagi sína og annarra, áætlanir sínar og tómstundaiðju
    • grunnuppbyggingu málkerfisins
    • siðum og venjum í almennum samskiptum fólks
    • málsvæði spænskrar tungu
    • landafræði Spánar og ákveðnum þáttum menningar landsins
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • tjá sig skriflega með einföldum setningum og veita persónulegar upplýsingar um sig og aðra
    • lýsa sjálfum sér og öðrum útlitslega og persónulegum einkennum
    • tjá álit sitt á efni sem hann þekkir á mjög einfaldan hátt
    • rita stuttan og mjög einfaldan texta
    • skilja einfaldar setningar, algeng orð og fyrirmæli er tengjast honum sjálfum, fjölskyldu og nánasta umhverfi
    • skilja einföld fyrirmæli
    • segja frá sjálfum sér og spyrja aðra um þeirra hagi
    • taka þátt í samræðum um mjög afmarkað efni sem tengist honum persónulega ef hinn aðilinn er tilbúinn að umorða hluti, endurtaka, tala hægt og leggja til orð
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • fylgjast með töluðu máli í einföldum frásögnum og erindum og ná aðalatriðum úr fjöl- og myndmiðlum þar sem fjallað er um kunnuglegt efni sem nemandinn svo nýtir sér í náminu
    • ná upplýsingum og aðalatriðum úr stuttum lesnum textum sem fjalla um kunnuglegt efni
    • leysa úr viðfangsefnum einn eða í samstarfi við aðra
    • meta eigið vinnuframlag
    • geri sér grein fyrir landfræðilegri uppbyggingu Spánar og mismunandi málsvæðum þar sem spænska er töluð
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.