Í áfanganum verður byggt ofan á þann grunn sem lagður var í byrjunaráfanganum. Áhersla er lögð á að þjálfa áfram alla málfærniþætti: munnlega og skriflega tjáningu, hlustun og lesskilning. Unnið er með orðaforða sem tengist nánasta umhverfi nemandans og daglegum athöfnum svo sem tímasetningum, kurteisisvenjum, atvinnu, tómstundum, matarvenjum, innkaupum og hátíðum. Þá eru nemendur einnig þjálfaðir í að segja frá liðnum atburðum og endurminningum. Upplýsingum um menningu og staðhætti frönskumælandi landa er fléttað inn í kennsluna m.a. í gegnum lestur viðeigandi texta sem varpa ljósi á daglegt líf og með myndefni eða tónlistarefni.
FRAN1EL05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
orðaforða, sem tengist nánasta umhverfi og daglegum athöfnum
helstu grundvallarþáttum franska málkerfisins og fest í sessi kunnáttu fyrri áfanga
einföldum samskiptum og tjáningu í mæltu og rituðu máli
framburðarreglum og hafi náð betra valdi á hljómfalli málsins
Frakklandi og frönskum málsvæðum, ásamt einstökum þáttum franskrar menningar
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
skilja talaða frönsku um efni, sem tengist ýmsum daglegum aðstæðum og athöfnum og inniheldur orðaforða sem hann hefur kynnst
skilja einfalda texta í nútíð og núliðinni tíð
taka þátt í stuttum samtölum um efni, sem tengjast daglegu lífi og tómstundum
segja á einfaldan og skýran hátt frá persónulegum högum, áhugamálum og liðnum atburðum
skrifa ýmsar gerðir texta í nútíð og núliðinni tíð um efni, sem hann þekkir vel
nýta sér ýmis hjálpargögn, svo sem orðabækur og Netið
tjá sig munnlega og skriflega um liðna atburði
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
ráða við kringumstæður sem tengjast efni áfangans
skiptast á skoðunum um algeng málefni
fjalla í ræðu og riti um helstu atriði sem snerta daglegt líf og skoðanir
bjarga sér á frönsku við algengar kringumstæður á heimilinu, í verslunum, á veitingastöðum og kaffihúsum
bjarga sér sem ferðamaður í frönskumælandi umhverfi, svo sem að leita upplýsinga um brottfarartíma, kaupa sér lestarmiða, tala um ferðamáta
leysa viðfangsefni einn eða í samstarfi við aðra og með viðeigandi hjálparmiðlum
sýna aga, metnað, sjálfstæð vinnubrögð, jákvæðni og trú á eigin getu í frönskunáminu
vera óhræddur við að nýta sér kunnáttu sína í frönsku í almennum samskiptum
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.